Boggu Blogg
Jólin jólin jólin dinga linga ling :D
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1497 dögum
02.01.2008 22:29:57 / bogga

nýtt blogg....

Þetta blogg er að gera mig gráhærða.. má ekki við því!!!!!!!! :S

Allar myndirnar mínar dottnar út og svo þá datt ú heimsins lengsta færsla um jólin og  áramótin + annáll 2007 og myndir... ég er FÚÚÚÚL:whut:

 

ætla þess vegna að biðja ykkur gott fólk að kíkja á þessa

www.nurse.bloggar.is

og segja mér hvernig ykkur líst á kvikindið...


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.12.2007 21:03:50 / bogga

Komin heim :)

Jæja, þá er maður kominn heim í hreiðrið sitt!!!

Ég þarf að setja inn smá ferðablogg, en ég nenni því ekki núna, ætla að fara að horfa á Stardust, búið að standa til í nokkra daga ;) En jólin voru hin fínustu og sá stutti alveg kampakátur :haha:


» 13 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 13:50:41 / bogga

GLEÐILEG JÓL

GLEÐILEG JÓL ELSKURNAR OG HAFÐI ÞAÐ NÚ GOTT UM JÓLIN OG EKKI BORÐA YFIR YKKUR AF KONFEKTINU ;) :haha:


» 23 hafa sagt sína skoðun

19.12.2007 21:57:09 / bogga

5 dagar til stefnu!!!

Jæja, þá eru ekki nema 5 dagar í aðfangadag!!

Í gær skelltum við Jói okkur á jólahlaðborð argentínu, það var sweeeeet, Patrekur Trausti var í pössun hjá afa sínum á meðan og ég gat ekki betur séð en að þeir hafi skemmt sér konunglega saman ;)

Að vísu fékk kúturinn að leggja sig hjá afa um 19 leytið, sem hann fær ekki að gera hjá okkur eftir 18, svo að Patrekur var alveg hress til hálf 1 í nótt :|:D Það er nú ekkert til að kvarta undan.... Jólahlaðborðið var ææææææææði, átum alveg á okkur gat og auðvitað missti Sigurbjörg sig í Créme Brulée og súkkulaðiköku með ís og heitri karamellusósu:^) jiiii eins gott að maður taki sig í ræktinni þessa örfáu daga fyrir jólin svo að allt setjist ekki á mann aftur.. við viljum það ekki nei nei:$

Ég fékk að sofa út í morgun, svaf alveg til hálf 11, sem var sweeeeeet, ég vaknaði líka í súper tiltektarstuði og við fórum í það að gera jólaþrifin!! Tókum skápa og allt ruglið í eldhúsinu, endurröðuðum ýmsu og skúruðum stofuna og þurrkuðum af... eg meira segja lagði í að þrífa eldavélina og ofninn!!8) svo fór ég niður í bílskúr og týndi saman allar %&(/)(/$% flöskurnar og gvuuuuu það mætti sko halda að maður væri að overdósa á malt og appelsíni og rauðum kristal +, miðað við magnið af flöskunum og dósunum.. eg verð allavegana illa svikin ef ég fæ ekki 500 kjéééll fyrir kvikyndin!!!!!8|8)

Jói gerðist svo frakkur að fara í heljarinnar Bónusferð!!!!!! Þegar hann kemur tilbaka þá er hann með svo mikið af góðgæti til að fylla ískápinn ( sem er nú ekki lítill ) Kassi af mandarínu, 2,9 kg af Quality streed, stór after eight kassi, doritos, rjómaostur og salsa til að gera heita sósu, 2 kippur af malti og appelsín, kippu af kristal + og eitthvað meira góðgæti!! Dósin af konfektinu er á borðinu og öskrar á mig en ég er að streitast á móti.. en græðgin er nú heldir sterkari en viljinn við að fá sér ekki:frown: en heyyyy, jólin eru nú bara einu sinni á ári og ég ætla sko ekki að vera í einhverri helv...... megrun um jólin.. nóg að vera það alla hina daga ársins... þegar maður er óléttur og um jólin þá má maður sko éta það sem hugurinn girnist.... ætla reyndar að stilla því í hóf þegar og ef maður verður barnshafandi aftur svo að þegar barnið er komið í heiminn þá sitji ekki enn eftir 25 kíló daginn eftir...:klikk: hahahaha!!!! Förum ekki nánar í það....:haha:

Hmmm.... Mamma og co. ætluðu öll að fara í bæinn á morgun en eitthvað eru plön að breytast vegna þess að fjósamaðurinn klikkaði, vona að það gangi nú samt upp svo þau komist, annars koma þau ekki fyrr en á föstudag, Jakobína ætlaði að halda smá afmæli, vonandi verður það hægt líka :) Svo bíða hér í frystinum slatti af sörum sem ég bakaðu handa mömmu ;) og ég er ekki búin að bíta í svo mikið sem eina!!!!!!!!!8|

Núna er Jóalingur í póker með nokkrum felögum, ætlast svo til að fá helminginn af reiðufenu þegar hann kemur heim 8) Kannski fæ eg það bara allt því að hann sagðist ætla að kaupa handa mér föt fyrir peninginn :klikk:

Á morgun ætla ég að klára jólastússið... á bara eftir 2 gjafir


» 22 hafa sagt sína skoðun

18.12.2007 22:24:26 / bogga

Það eru að koma jóóóól!!

 

Mynd dagsins


» 20 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 10:17:20 / bogga

Jóagjafaóskalistar ;o)

Þar sem þetta er á annarri hverri bloggsíðu þá ætla ég bara að setja svona inn líka, svona ef einhver ætlar að vera elskulegur og gefa manni jólagjöf :haha: ;)

Patrekur Trausti: Tripp Trapp matarstóll, Náttföt, Spegill í afturísæti svo hann geti séð sjálfan sig (mjög sniðugt), íþróttagalla, Húfu, dót í baðið, órói til að hengja á bílstól og kannski bara föt já.... Hann er í stærð 74 8)

Bara svona nokkur hint, ekkert ýkja nauðsynlegt allt saman, nema kannski Matarstóllinn en hann er ekki gefins híhí....:lol:

ÉG: Nýja íþróttaskó, íþróttatopp, æfingabuxur, Bodylotion-pakka frá Bodyshop (vanillu er vel þegið;), Peysu, Húfu, Flugdrekahlauparinn, þúsund bjartarsólir, gjafakort í Kringluna eða Smáralind, nýjar reiðbuxur, Hlýja úlpu fyrir útreiðarnar í vetur ooooooooog ég veit ekki hvað og hvað... annars er ég bara vel sett.... :haha:

Heimilið: Kökudisk á standi, hraðsuðuketill, skálar, pönnukökuspaði, og ég man ekki meira í augnablikinu :|

 

Kannski maður bæti einhverju hérna við á næstunni.... erfitt að hugsa svona snemma morguns... :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.12.2007 10:01:33 / bogga

Hó, hó, hó...

Það eru alveg að koma jóóóóól :haha:

 Ég er loksins að losna við kvefið og hálsbólguna sem er búið að vera að hrjá mig í tæpa viku, var bara hálfveik alla helgina en núna er ég að verða góð, sem betur fer... Jói var lasinn um daginn líka og ég tók þá við af honum.. jibbíííí!!! En Patrekur Trausti hefur sem betur fer sloppið ennþá 7 9 13, hann er að vísu búinn að vera með smá hor í annarri nösinni en það er nú ekkert til þess að tala um:| Vona allavega að hann sleppi bara alveg litli snáðinn...

Ég er búin að kaupa helling af jólagjöfum... en mér finnst ég samt eiga helling eftir!! Það er svo mikið af litlum gríslingum sem manni langar að gefa eitthvað smotterí, þarf ekkert að vera stór bara smá svona til að gleðja litlu greyin ;) Annars þá ætlum við Jói að klára þetta í næstu viku, hann fer í jólafrí+ fæðingarorlof á föstudaginn.. verður víst easy peasy vinnudagur hjá honum þá því það er hangikjetsveisla í vinnunni hjá þeim...:D mmmm... mig langar í hangikjöt, flatköku og laufabrauð:^) Hlakka mikið til að gæða mér á heimareykta kjötinu!!!

Ég er ekki búin að geta mætt í ræktina í 6 daga út af kvefi og hálsbólgu, mér finnst það alveg hræðilegt... er komin með brjáluð fráhvarfseinkenni og var ekkert lítið súr yfir því að missa af pallatímanum í gær... ég tek bara á því í kvöld, þá er brennslutími... verður gott að komast aftur til að hreyfa á sér rassgatið ;) hehe... ég fór um daginn þegar það var sprengidagur í Debenhams og keypti mér buxur í minni kantinum og setti mér það markmið að vera komin í þær um jólin.... Ég mátaði þær á sunnudaginn og ég get svo svarið það að þær rétt hanga upp um mig núna!!! Samt leiðinlegt því þetta eru geðveikar buxur úr warehouse og áttu að kosta 11 þús kall!!! ég ætla samt að nota þær, þó þær lafi.. það verður bara the new "kúl"!!

Stekkjastaur kom víst í nótt... (ég fekk ekkert í skóinn)

Það sem er á planinu í dag er nú ekki ýkja merkilegt... þarf að ná í jólakort í hans petersen, fara með pakka á pósthúsið og senda til Svíþjóðar ooooooog auðvitað ræktin í kvöld.... Held að Jói sé að fara að spila póker í kvöld kl 8 þannig við sjáumst varla í dag...:| Við Patrekur verðum örugglega bara í rólegheitunum... ég er amk búin að ákveða að fara snemma að sofa því að ég er orðin alveg hrikaleg að vakna á morgnana, bara kem mér ekki fram úr, allt svo koldimmt, og liggur maður bara í bælinu og Patrekur skríkir út í eitt, langar að komast á lappir en hann á svo leiðinlega og morgunlata mömmu að hann verður að liggja í amk korter áður en ég drattast á lappir.. þetta er bara ekkert djók að vakna kl 8 á morgnana þegar það er niðamyrkur úti ennþa og skítkalt.. svona ekta sofa-til-háldegis-veður..8)

Jááá, ég má nú ekki gleyma hápunkti dagsins!!!!! ;) Það er að ég fer í klippingu... ég fer reyndar ekkert, heldur ætlar Svana að vera svo yyyyyyyyyndisleg að koma til mín og klippa á mér lubbann, eða það sem eftir er af honum vegna óverulegs hárloss í kjölfar brjóstagjafar:cry::evil: En þetta er víst eitthvað sem gengur tilbaka... ;) thank god, maður hefur heyrt um suma sem fá hreinlega skallabletti:!:8| Vona að ég verði ekki ein af þeim... en ég hlakka mikið til að fá jólaklippinguna mína :haha:

Jæja ætli ég segi þetta ekki bara gott svona í morgunsárið.. þegar ég hugsa til baka þá sé ég aðeins eftir því að hafa ekki bara lagt mig með Paterki áðan.... það hefði eflaust verið gáfulegra en að setjast niður við tölvuskrattan og blogga um eitthvað og ekki neitt...svona er maður vitlaus.. hugsar eftir á ....

XxX


» 24 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 11:22:03 / bogga

13 dagar til jóla!

Og ég er búin með fullt af jólagjöfum, búin að panta jólakortin og búin að baka helling 8) Ekki frá því að við seum komin í jólaskap hérna í Grafarvoginum, búin að skreyta hátt og lágt... bara gaman, Jói á eftir að vinna 4 daga í viðbót og þá er hann kominn í frí fram í janúar einhvertíman, þökk sé fæðingarorlofi ;)

Bara stutt í dag ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.12.2007 21:49:45 / bogga

jólin jólin jólin koma brátt :D

Já, jólin eru aaaaaaaaalveg að fara að koma!!

Hér eru allir komnir í jólaskap!!! Við skreyttum alveg helling í dag, erum búin að setja seríur í flesta glugga, aðventuljós og loftskraut, rosalega flott :) Patrekur er alveg ástfanginn af seríunum, honum finnst allt þetta ljósaflóð einkar spennandi ;) Ég er búin með nokkrar jólagjafir, og eina afmælisgjöf því Jakobína á nú afmæli 20 des. :)  Eigum eftir að græja jólakortin, ætlum að klára það um helgina, það eru nú ekkert svo ýkja mörg kort, samt alveg ágætis haugur:D

Eníveii... vikan er búin að einkennast af slappleika, Jói búinn að vera veikur síðan á þriðjudagskvöld, og ég byrjaði að fá í hálsinn og ógeð í gærkvöldi... ekkert alvarlegt svo sem bara einhver svona durgur í manni.... Vona að þetta fari fljótt úr manni :) Við Kristín vorum alveg hriiiiikalega duglegar og bökuðum alveg PERFECT Sörur í gær, alveg sjúúúúklega góðar, þvílíkt flottar, lyftu sér alveg fullkomnlega og bragðið nottla alveg allltof gott!!!!!!!!!! ;) :haha: Mamma er svo komin í bæinn og við ætlum í verslunarferð á morgun, klára jólainnkaupin og svona ýmislegt annað :) Hún er með laufabrauð handa mér og nokkrar sortir af smákökum sem hún og amma bökuðu, tóku sig til og misstu sig alveg gjörsamlega í kökubakstrinum ;)  ekki slæmt að fá svoleiðis sendingu :haha:

Mamma, Kristján og Þrúða eru svo að fara á jólagestir Bjögga Halldórs annað kvöld, ég gaf þeim það í afmælisgjöf, eða mömmu :) Guðmundur og Jakobína verða hjá okkur á meðan, er að finna einhverja mynd handa þeim til að horfa á.. Patrekur á eflaust eftir að fíla eitthvað af fíbblaganginum í þeim...  ;) mmmmm jæja....

Ég á í kælinum 2 ííískalda Breezera, er að hugsa um að gæða mér allavega á einum í kvöld...  Patrekur er sofnaður og hann vaknar líklega ekki fyrr en um 7 eða 8 í fyrramálið, hann er algjör draumur, svo sefur hann bara áfram til 9 eða 10... 8)

ætlaði bara að henda inn smá bloggi hérna...

Góða helgi elskurnar ;)

 


» 19 hafa sagt sína skoðun

03.12.2007 12:38:18 / bogga

Hún á afmæli í dag ;)

Til hammó með ammó Heiðrún mín, þar sem ég veit ekkert hvort smsið frá mér í dag kemst til skila ;) :haha: Vona að þú eigir svo góðan það þarna í Stóra Eplinu og fáir eittvað gott að borða í kvöld 8)

Kveðja frá okkur Patreki Trausta:haha:

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.12.2007 13:22:05 / bogga

Laugardagsblogg...

:haha: Komin helgi :haha: 

Hmm kannski ég reyni að drulla einhverju hérna niður...  :lol:

Ég er komin í jólaskap!!! Við Kristín bökuðum tvær sortir á fimmtudaginn síðasta, lakkrístoppa og engiferkökur og við eigum bara eftir að gera sörurnar ;) mmmmmmm fæ bara vatn í munninn!! Fór niður í kompu í gær og sótti seríur, styttur og smá skraut, eg þar bara eiginlega að fara í jólaskrautsleiðangur, held að það sé málið!! Ég ætla að skreyta og skreyta og SKREYTA ÞESSI JÓLIN!!!!!!!!! en ok vá ég var að líta á dagatalið og það eru 23 dagar í aðfangadag og ég á eftir að gera jólakort og kaupa inn gjafirnar... Ætla í verslunarferð með mömmu á laugardaginn, þau eru að fara á tónleikana með Bjögga, ég var svo góð og gaf þeim tvo miða í bestu sætin í afmælisgjöf þegar mamma átti afmæli :) ég er best ég  veit 8) Guðmundur og Jakobína verða hérna um kvöldið á meðan... sem minnir mig að ég þarf að finna einhverja teiknimyndadellu fyrir þau að horfa á...:D

Ég er nokkurn vegin búin að ákveða flestar jólagjafirnar, tja svona næstum því.... jólakortalistinn er kominn á hreint eða svona ja líka nokkurnveginn... þarf bara að fara með mynd af Pattaling í fjölföldun til að setja inn í kortin  :) jól jóljóljól... jólahjóóóól! :haha:

Það er búið að vera brjálað veður í allan gærdag.. og í nótt og nóttina þar a undan... tengdo voru að koma í bæinn, ætluðu með flugi í gær morgun en komust ekki fyrr en í dag... Jói fór og sótti þau á flugvöllinn, það var þota sem flaug frá AK til RVK og það voru 190 manns í henni sem ekki höfðu komist í allan gærdag... örugglega aðeins betra en rellurnar sem eru notaðar annars.... æj kannski er það bara ég sem er svona skítaflughrædd.. og ekki ferð það batnandi!!

Annars af öðru... og heldur óskemmtilegra!!!!!!!!!!!!!!!!!!

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1306448

Hvernig í ósköpunum getur einhver gert svona lagað!!! Ég vona svo innilega að sá hinn sami gefi sig fram!!  og ef ekki þá vona ég að svínið finnist svo að hann fái makalega málagjöld!! þetta er bara til háborinnar skammar og þvílík mannvonska!! 8| Ég vona líka að litli drengurinn eigi eftir að jafna sig eftir þetta...

Jæja, kannski ég fari að gera eitthvað af viti... vona að þið eigið góða helgi og njótið hennar vel!! ;)

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.11.2007 19:47:39 / bogga

skúbbdúbb..

Jæjaa... Kominn tími á smá update! ;)

Það sem er nýjast í fréttum er að ég er líklega komin með hesthúspláss, eða ég er að fara á morgun og skoða tvö laus pláss :haha: annað er á Heimsenda og hitt er í Andvara, ég tek annað hvort það er alveg pottþétt, ekki skemmir fyrir að Svana mín er bara í næstu röð og ég verð þarna í Andvara, jibbí skibbí!!!

Patrekur Trausti velti sér aaaaaaaaaaaaleinn í kvöld af maganum yfir á bakið og það náðist á vídjóóóóó 8) ohh hann er svo duglegur, endalaust dugleguuuuuuuuuuuurrr... Kúturinn er farinn að slefa svo mikið að ég er stanslaust að setja hann í nýjar treyjur og samfellur, stundum fer bara allt i gegnum slefsmekkinn líka hehe, hann puðrar svo mikið og svo koma slefkúlur, þetta er nottla bara alveg gordjöss krúttlegt!!!

Hérna er svo gimsteinninn minn ;*

Hef nú svo sem ekkert mikið í fréttum annars, er bara aðeins farin að huga að jólakortunum og jólagjöfum, eða reyndar bara búin að hugsa það er ekkert farin að gera í því ennþá hahaha! en þetta er allt að fara að gerast núna á næstu dögum.... Jólabakstur planaður með Kristínu og Kolfinnu Eir á fimmtudaginn, ætlum að baka Sörur, engiferkökur og mömmukökur :D Ég reyndar gerðist svo kræf um daginn eins og ég var búin að segja og bakaði dílissjöss BRÚNTERTU, það er nú meira "vesenið" maður þarf alveg að hafa allan heimsins tíma á meðan maður er að gera þetta í fyrsta skiptið en þessi kaka er svo góð að það skiptir engu mali, er alveg þess virði ;)

Jæja, ætlaði bara að segja eitthvað sma hérna og láta vita að maður sé á lífi :) best að gera eitthvað... það er nebbla despó kvöld í kveld 8)


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 15:01:41 / bogga

Allt og ekkert.... ;o)

Loksins getur maður bloggað á þessu ljóta rusli.... Allar myndir og allt dottið út, ekkert mjög gaman, mér þætti gaman að vita samt hvort að maður gæti fengið þær einhverstaðar aftur.. þetta er engin smá vinna sem hefur farið í að setja þetta niður og skrifa við hverja einustu mynd :|

Ég er búin að vera ógissla dugleg í dag!! Ég fékk svo mikið af hakki úr sveitinni og var ekki alveg viss hvað ég átti að gera við það, ætla ekki að búa til hakk og spakk í hverja máltíð hehe... þannig pabbi sagði við mig að búa til kjötbollur úr því :) Ég fór kl 11 í morgun heim til pabba og Katrínar og við Katrín mössuðum 2 kg af kjötbollum og þær er u ÝKT GÓÐAR!:haha:  Svo á morgun ætlum við að búa til nokkrar brúntertur fyrir jólin ;)

Var rosa dugleg í kvöld og fór í brennslutíma, það var svona stöðvarþjálfun og maður svitnaði alveg þokkalega sko ;) Á morgun ætla ég í anna brennslutíma sem heitir Bræðingur, samanstendur af líkamsrækt með dansívafi, salsa, mambo, samba, jazz, funk og stuð gjöðveikt gaman!!!!!:haha: og á föstudaginn er magi rass og læri... maður verður orðinn helköttaður fyrir jólin 8) jibbíííí!!! 22 kíló farin síðan ég átti:klikk:

Shiiitttt... ok ég verð bara að tala um það.... DEXTER eigum við að ræða það eitthvað!!! Þið sem eruð ekki að fylgjast með þessu OMG þið eruð að missa af einum svakalegasta þætti bara ever... ég er alveg hooked á dexter, desperate houswifes ooooooooog  prison break... maður er límdur við imbann öll kvöld þegar krílus er sofnaður híhíh....:lol:

Helgin framundan er ekki útplönuð en við ætlum að borða með Kristínu og Nonna á föstudagskveldið og horfa á imbann, svo á laugardagsmorguninn er plönuð sundferð í árbæjarlaugina með Patrek Trausta:haha: Hann elskar vatn.... fór með hann í bað í kvöld og hann sofnaði nærri því, svo þegar hann kom upp úr fékk hann olíunudd frá pabba sínum og þegar það var búið fékk hann hrein náttföt og nýja bleiu og hann var sofnaður eftir eina mínótu hehe... var voða sáttur með þetta allt saman litli kúturinn

Ætli maður eyði ekki restinni af kvöldinu í rólegheit og vídjógláp.... er að vona að despó sé að koma inn, nýjasti þátturinn, endaði hell spennandi síðast svo maður er alveg æstur í næsta :haha: Er að hugsa um að skera niður epli og appelsínu og breiða úr mér í lazy boy og sötra eina malt og appelsín;)


» 20 hafa sagt sína skoðun

14.11.2007 20:45:07 / bogga

Jæja...

Þá er maður orðinn 22 ára :haha: Finn samt ekkert mikinn mun sko!!:|

Ég og Patrekur skelltum okkur í sveitina á mánudagsmorguninn... sú ferð var nú ekki alveg eins og hún átti að vera... Það lögðust allir í bælið með gubbuna... nema mamma hún fékk brjálaðan hita og læti um kvöldið.... þannig ég, Patrekur Trausti og amma fórum snemma um morguninn aftur í bæinn og ég tók með mér tertubotnana sem áttu að étast heima í sveitinni en það var víst ekki mikil matarlystin hehe:|

Ég bauð svo bara pabba og Katrínu í súkkulaði jarðaberja banana tertu og nýbakaðar ömmukleinur :) ekki slæmt það!!

Ég fékk 5000 kall frá fólkinu heima, kertastjaka frá Pa&Ka, og frá Jóa mínum fékk ég BLEIKAN ógissla flottan Nokia 6580 samlokusíma með myndavel, mp3, mp4 og ég veit ekki hvað og hvað :haha: ég var allavega svakalega ánægð með þetta ;* smútttsss!!

Annars er ekkert mikið í fréttum, Patrekur Trausti fór í 3 mánaða skoðun og sprautu í dag, hann er 7250gr, 65 cm og höfuðmálið var 43. Þegar hann fæddist var hann 3600 gr, 53 cm og höfuðmálið 37,5 cm... smááááááááá munur ;) híhí... Svo þegar hann fékk sprautuna þá var ég löngu byrjuð að vorkenna greyinu... en hey, haldiði að litli kallinn minn hafi bara ekki brosað út í eitt og hlegið þegar hann var stunginn!! bwahaha, læknirinn sagði að hann væri sterkur strákur 8) újéé... toppið þetta :klikk:

Erum svo bara búin að vera í rólegheitunum í allan dag, ég skrapp svo í brennslutíma í kvöld, það var svakalegt maður.!! Ekkert smá hressandi!! keypti mér salatbar eftir tímann því Jói var að fara út að spila póker með félögunum... Þannig við Patrekur erum ein í kotinu í augnablikinu... Svo er Pattinn bara sofandi núna og ég er að spa í að nýta tímann og skella mér í sjóðandi sturtu... oooooooooog fá mér einn mola af Belgíska konfektinu sem Logi nágranni gaf okkur, hann á búðina Vínberið á laugarveginum og hefur verið að luma að okkur svona svakalega fínum konfektkössum:^) og það er hreinlega ooooooooof gott til að vera satt..!! en einn moli... eða tveir... áts... ;)


» 17 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 21
Fyrsti sopinn haldinn hátíðlegur ;D
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1490 dögum